6-apr-06 Fuzz Finale
Þá er komið að síðasta fösskvis í bili. Baráttan um sigurinn er æsispennandi og eiga margir séns á titlinum. Getraunin í dag skiptist í tvennt, mússík og myndir. Tveir hljóðfælar, annars er með coverlögum og hinn með frægum setningum úr kvikmyndum. Í coverlögunum eigið þið að nefna flytjanda og lag og upprunalegan flytjanda en í bíómyndunum er spurt um kvikmynd og leikara sem koma við sögu. 19 stig í boði. Hjóðfælarnir eru hérna: Mússík og myndir. Gangi ykkur vel og góða skemmtun. Svörin má senda hingað, ekki láta out of office pirra ykkur...
ps. þar sem Ed verður utan þjónustusvæðis verða fælarnir ekki virkir fyrr en á morgun (föstudag) og verða engin aukastig veitt fyrir þann sem er fyrstur að svara og úrslitin verða ekki tilkynnt fyrr en eftir páska en þá verður mikil verðlaunaafhending á Nordica í beinni á NFS og Omega...
5-apr-06 Fösskvis á miðvikudegi?
Já það er stór dagur í dag fyrir alla fösskvisarana, nema kannski þann sem vermir toppsætið. Í dag ætlum að reyna að jafna leikinn aðeins og gera þetta spennandi fyrir lokaumferð Fösskvis. Hér er hljóðfæll sem inniheldur 10 lög og ef þú veist hvaða lög þetta eru og hver er höfundur hvers lags þá ertu 3 stigum frá toppsætinu, nema að sá sem er í efsta sæti svari öllu rétt en þá er þetta svo gott sem búið. Kannski ekki sanngjarnt en hver sagði að lífið væri sanngjarnt. Nafn á lögum og höfundum skal senda með DHL hingað...
31-mar-06 Mo´ Föss
Þá er hann runninn upp dagurinn sem við öll höfum beðið eftir svo lengi, 31. mars og Ed á leiðinni í frí, þó ekki frá Fösskvis, alla vega ekki strax. 12 stig í pottinum í dag, tónlistargetraun og skemmtilegt þema. Þið heyrið syrpu og nefna skal lag og flytjanda, 1 stig fyrir hvert rétt svar. Hljóðfællinn er hér og senda skal svör í hvítu umslagi merkt steindor@sg.is. Gangi ykkur vel...
Skál!
23-mar-06 Early föss
Þar sem Ed verður utan þjónustusvæðis á morgun þá er Fösskvis þessa vikuna birt snemma. Hollywood er málið í dag, nokkrar myndir birtast á skjánum og er einfaldlega spurt um nafn myndarinnar. 8 stig í boði og 3 stig fyrir sigurvegaran en það er ekki endilega sá sem svarar fyrstur (þar sem þetta er birt svo snemma) heldur sá sem á skemmtilegasta kommentið sem tengist myndunum. Meilið er það sama og venjulega...
![]() |
![]() |
||
| Nr. 1 | Nr. 2 | Nr. 3 | Nr. 4 |
| Nr. 5 | Nr. 6 | Nr. 7 | Nr. 8 |
Later...
17-mar-06 I´m fuzzy
Gátan í dag er í boði EdTV. Við kíkkuðum í skjalasafn EdTV og tókum með okkur nokkur lög (kannski of mörg) og er getraun dagsins brot úr þessum lögum. 12 bútar heyrast og er aðeins spurt um sjónvarpsþátt. 3 aukastig eru í boði ef þú getur nefnt hver af þessum þáttum er vinsælastur á EdTV. Súpan er hér og netfangið er ávallt það sama. Góða skemmtun og góða helgi...
10-mar-06 Fuzz
"Koddu með fagottið" sagði skáldið forðum og bað þar um sóló. Fösskvis tekur gítarsóló í dag fyrir ykkur og er nóg að nefna lag og flytjanda og þið fáið stig fyrir hvert, 10 stig í boði. Hér er sóló og hér er pósthólf...
3-mar-06 Trommandi Fösskvis
Trommarar eru sjaldan í sviðsljósinu en í dag drögum við nokkra fram. Leikin verða 6 lög og eigið þið að nefna lagið og svo trommarann - 12 stig í boði í dag. Lagðar hafa verið gildrur undanfarna föstudaga en er gildra í dag, það kemur í ljós. Hér er mússíkfællinn. Svörin skulu sett í sama póstkassa og alltaf. Google away...

24-feb-06 Mr. Fössi
Í dag eru það kvikmyndir sem leitað er að. Sex myndir birtast og er einfaldlega spurt: úr hvaða mynd er þessi mynd. Aukaspurningin er svo þessi: Hvaða mynd sá Ed fyrst og í hvaða bíói sá hann myndina? Sem sagt, 7 stig í boði. Sendið svörin hingað, eins og alltaf. Have fun...
| Nr. 1 | Nr. 2 | Nr. 3 |
| Nr. 4 | Nr. 5 | Nr. 6 |
Þannig hljómaði það. Við þetta má svo bæta að staðan í Fösskvis verður birt í næstu viku, líklega þann 28. febrúar. Góða helgi...
17-feb-06 Time to play Föss
Fösskvis goes to Hollywood. Í dag spurjum við um kvikmyndir. Hér er hljóðfæll og eru 7 stig í boði fyrir snillinga. Einnig er boðið upp á aukaverðlaun fyrir þá sem fá fullt hús, já eða fullt prik eins og einhver sagði. Aukaverðlaunin eru ekki af verri endanum, ipod. Já þú færð ipod ef þú nærð þessu rétt. Meilið ávallt það sama. Góða skemmtun...
10-feb-06 Fösskvisið
Ok, þetta var erfitt í síðustu viku en er kannski auðveldara í dag. Nú er spurt um hljómplötur. Þið sjáið myndir og eiga þær að segja ykkur um hvaða plötu er spurt. 1 stig fæst fyrir rétta plötu og flytjanda, samtals 8 stig í pottinum, 10 stig fyrir sigurvegarann. Meilið ávallt það sama. Kominn tími á að hafa Fösskvis myndrænt...
3-feb-06 Fösskvis
Ok, núna verður þetta erfitt, vonandi. Eins og svo oft áður þá heyrið þið lagabúta og spurjum við um auglýsingar, 6 stk. 1 stig fyrir rétta auglýsingu og þið getið unnið ykkur inn aukastig ef þið nefnið flytjandann. Búið er að senda tilkynningu til Google og eiga þeir von á þungri umferð í dag en það er komið grænt ljós á það. Sendið svörin hingað og hér eru lögin. Gangi ykkur vel og góða skemmtun...
27-jan-06 Fösskvis baby
Jæja, þá er komið að því, helgina að koma og það þýðir bara eitt - it´s time to play Föss. Í dag er spurt um sjónvarpsþætti, þið fáið að heyra lagabút og hann á að segja ykkur um hvaða þátt er spurt. Aðeins er spurt um nafnið á þættinum. 1 stig er gefið fyrir hvern réttan þátt. Meilið er það sama og alltaf og hérna er þessi litli lagabútur. Ed verður reyndar lítið við tölvuna í dag þannig að þið fáið ekki niðurstöðu strax. Góða skemmtun og gangi ykkur vel...
20-jan-06 Fösskvis
Í dag spurjum við um kvikmynd og leikara. Hér fyrir neðan eru nokkrar setningar/samtöl úr kvikmyndum og þurfið þið að nefna úr hvaða mynd þetta er og hvaða leikari/leikarar áttu þessar línur. 11 stig í boði og 2 stig fyrir sigurvegarann. Meilið er það sama og allaf, sendið svörin hingað. Spurning um að misnota ekki google í dag...
1. I've had three lovers in the
past four years, and they all ran a distant second to a good book and a warm
bath.
2. What you know you can't explain, but you feel it. You've felt it your
entire life, that there's something wrong with the world. You don't know what
it is, but it's there, like a splinter in your mind, driving you mad.
3. X: Have you found God yet, Y?
Y: I didn't know I was supposed to be looking for him.
4. Women need a reason for having sex, men just need a place.
5. I'll make him an offer he can't refuse.
Góða helgi.
13-jan-06 Fösskvis kommbakk
Jæja þá erum við mætt aftur með Fösskvis en nú með nýju sniði. Fyrir hvert Fösskvis verða veitt æðisleg verðlaun en núna verður líka safnað stigum og sá sem verður með flest stig þegar yfir líkur fær meiriháttar æðisleg verðlaun. Fösskvis gefur mismunandi stig í hverri viku og safnaru stigum þó þú vinnir ekki en sigur í Fösskvis gefur 3 aukastig. Vonandi skilur einhver þetta. Jæja byrjum á þessu...
Í dag verða flutt 4 cover lög og bið ég um nafn á lagi og flytjanda og upprunalegum flytjanda. 1 stig fæst fyrir hvert rétt svar. Fösskvis getur gefið 12 stig í dag, ekki slæm byrjun það. Búturinn er hérna og svör sendast hingað. Gangi ykkur vel og góða skemmtun...
9-dec-05 Fösskvis...
...í dag snýst um eitt stykki leikara. 5 myndir af sætum körlum eru vísbending dagsins. Sendið meil hingað þegar þið teljið ykkur hafa fundið leikarann. Gúúd lökk...
Fösskvis í síðustu viku olli vonbrigðum, örfá svör bárust en ekkert rétt. Íslensk fjöll eru greinilega ekki ofarlega í huga fólks...
2-dec-05 Fösskvis
Í tilefni þess að fullveldisdagurinn var í gær verður getraunin í dag alíslensk. Í dag spurjum við um fjöll, 5 stk. Á skjánum birtast myndir og ef þið þekkið þessi fallegu fjöll þá sendið þið meil. Verðlaunin að þessu sinni er sæti í stjórn gönguklúbbsins Fótasveppir. Gangi ykkur vel og góða skemmtun.
Fjall nr.1 - Fjall nr. 2 - Fjall nr. 3 - Fjall nr. 4 - Fjall nr. 5
24-nov-05 Fösskvis...
...goes to Hollywood. Já í dag ætlum við að spurja um kvikmyndir og það 6 stk. Hlustið á þetta og sendið mér svo svarið hingað. Þetta er pínu langt en þið komist í gegnum þetta. Stykleiki Fösskvis í dag er ekki ýkja hár, allavega ekki fyrir snillinga eins og ykkur. Góða skemmtun. Verðlaunin eru ekki af verri endanum í dag en sá sem fær flest stig fær frítt í bíó og popp og kók með. Veit ekki hvað við gerum ef allir fá fullt hús, kemur í ljós...
18-nov-05 Fösskvis
Spurt er í dag um kvikmynd. Nú sjáið þið myndir, horfið vel á skjáinn og ef þið teljið ykkur hafa svarið þá sendið þið meil í þetta pósthólf. Rétt svar færir þér lukku sem dugar út árið...
Já, líklegasta skemmtilegasta og fallegasta föstudagsgetraunin til þessa...
11-nov-05 Föstudagsgetraunin...
er mússíkölsk í dag. Spurt er um lag og flytjanda á 5 lögum. 1 stig fyrir hvort, samtals 10 stig í pottinum. Sá sem fær flest stig vinnur sér inn nýjasta karíókíí diskinn með Jóni Sigurðssyni, ef einhver vill. Nei vonlaus verðlaun, höfum það frekar hinn frábæra disk Lot Alotta Jóla Jól, sem kemur út 1. des. Góða skemmtun og gangi ykkur vel. Hérna er syrpan.
3-nov-05 Föstudagsgetraunin
Í dag er spurt um sjónvarpsþátt, 1 stk. Vísbendingarnar eru:
Apollo 13
Guiding Light
Miracle
Svör vinsamlegast sendist hingað. Takk fyrir og gangi ykkur vel. Já í verðlaun er kvæði eftir Ed, sem heitir Gátuleikur...
28-oct-05 Föstudagsgetraunin
Í dag spurjum við um hljómsveit. Þetta er hjálpargagnið, geri ráð fyrir að sumir noti þetta líka...
Svör sendist á þetta ágæta meil. Verðlaunin? Áskrift að Skjá 1 í 3 mánuði...
21-oct-05 Föstudagsgetraunin
Hvaða lógó eru þetta:
Sendið svör með tölvupósti. 1 stig fyrir rétt lógó og sá sem fær flest stig vinnur sér inn Liverpool rakspíra...
14-oct-05 Föstudagsgetraun
Köllum hana Fjarkinn í dag, þið fáið að heyra 4 lagastubba og eru 8 stig í pottinum, 1 stig fyrir réttan flytjanda og 1 stig fyrir rétt lag. Sá sem fær flest stig vinnur sér inn geisladisk...
Fjarkinn hljómar svona...
7-oct-05 Getraunin
er léttari í dag en oft áður. Spurt er: Hvaða lógó er þetta?
Fyrir rétt svar færðu 1 fríann leik á poolstofunni í Hallarmúla og ef þú veist hver hannaði lógóið, já þá veist þú aðeins of mikið. Ekki gleyma - svar í póst, ekki kommentakerfið...
30-sep-05 Föstudagsgetraunin heldur áfram
Já það þýðir ekkert að hætta með hana, þó svo að engin hafi leyst gátuna í síðustu viku. Þeir sem vilja vita það, þá var svarið San Miguel...
En getraunin í dag er í formi lagagetraunar, þið heyrið lagabút og ef þið þekkið flytjandann og/eða lagið þá sendið þið mér meil og í verðlaun í dag er notaður Nokia sími...
23-sep-05 Föstudagsgetraunin
Ákveðið hefur verið að hafa getraunina í dag óleysanlega, já eða svona næstum því. Hún er einfaldlega svona:
ANGUS MILE
Sama meil og vanalega, steindor@sg.is. Kippa af bjór handa þeim sem leysir þetta, spurning hvernig...
16-sep-05 Föstudagsgetraunin
Hvaða ár spilaði abba á íslandi?
Eins og áður, vinsamlega
sendið svör á steindor@sg.is.
Aðeins einn var með rétt svar í síðustu viku,
vonandi gengur betur núna...
Já og í verðlaun er kókómjólk, kanelsnúður
og tebolla...
9-sep-05 Föstudagsgetraun
Í verðlaun er pizza, bjór og DvD...
Hvernig dó mamma Forrest Gump jr.?
Vinsamlegast sendið svör á steindor@sg.is...