Eldri færslur - 2003

24-dec-03 Gleðileg Jól

Jólin eru komin og margt hefur gerst síðan síðast. Eins og ég bjóst alltaf einhvern vegin við, þá komst ég á forsýningu á The Return of the King, reyndar fór ég á tvær forsýningar. Þetta er ein af betri myndum sem ég hef séð, ef ekki sú besta. Það er bara allt við myndina sem er snilld, sagan að sjálfsögðu, tónlistin spilar mjög stórt hlutverk, myndatakan er frábær, allur leikur er til fyrirmyndar og svo allar brellurnar, hreinasta snilld... Myndin er mjög trú bókinn að flestu leyti nema kannski það sem snertir Sarúman en það verður líklega í lengri útgáfunni sem kemur væntanlega í nóv 2004, gaman þá...

Er ekki málið að slappa vel af um jólin...

27-oct-03 Biðin

Það er erfitt að bíða. Í dag eru tveir mánuðir í frumsýningu, kannski maður verði búinn að sjá hana eitthvað fyrr á einhverri forsýningu. Það hjálpar kannski eitthvað að 18. nóvember kemur út Extended Edition af milli kaflanum á DVD, sem er auðvitað skyldu eign. Reyndar líður tími hratt á þessari gervihnattaöld...

 

26-oct-03 Idol stjörnuleit

Idol á föstudagskvöldið var flott, nú fer gamanið að byrja fyrir alvöru. Úrslitin komu ekki á óvart, tvö bestu úr fyrsta hóp flugu í gegn, Karl sjóari og "sjarmatröllið" Anna Katrín. Anna Katrín fékk mitt atkvæði þegar hún söng Yellow af stakri prýði, enda ég mikill Coldplay aðdáandi. Ég kem til með að styðja Önnu þar til yfir líkur...

11-oct-03 Bíóferð

Það gerist mun sjaldnar nú á dögum en áður fyrr að maður fari í bíó en þó kemur það fyrir, t.d. í kvöld. Var þetta skyndihugmynd og eiginlega nálægasta bíóið valið og einhver mynd þar. Kann þetta ekki góðri lukku að stýra. Lenti ég á myndinni S.W.A.T. með þeim Samuel L. Jackson og Colin Farrel í fararbroddi. Þvílík óheppni. Ömurleg mynd. Mig langaði næstum að gráta, eyða pening í þetta, reyndar var kókið og poppið gott en það dugði skammt. Ekki einu sinni kynlífsatriði með Michelle Rodriguez, þeir gátu ekki einu sinni sýnt á henni brjóstin...

Þar sem að mörgum finnst þessi mynd góð hef ég fengið þá hugmynd, að þar sem ég er að bíða (eins og flestir) eftir lokahluta þríleiksins eftir Tolkien sem kemur í bíóin annan í jólum, að allir myndir sem ég sé lendi bara í skugganum á Lord of the rings myndunum, enda ekki hægt að toppa þær.

En samt, S.W.A.T. er ömurleg mynd. Formúlumynd full af gömlum klisjum...

30-sep-03 Þegar þú í draumum mínum birtist...

Vitur maður (eða kannski bitur maður...???) vitjaði mín í draumi í nótt með góða ráðleggingu. Hérna er það sem hann sagði mér:
"El Dorado, þú hætta að svekkja sig þegar Liverpool tapar leik. Þú verður að skilja eitt, Liverpool vera bara miðlungslið. Liverpool ekki vera eins og Arsenal og Man Utd, ekki einu sinni Chelsea. Liverpool vera bara eins og Newcaslte og Everton. Þú ekki halda að Liverpool vinna alla leiki, bara vinna annað slagið. Þú lifa eftir þessa ráðlegging og þú líða betur. Adiós!"

El Dorado ekki grínast....
Þetta er staðreynd, Liverpool er bara miðlungslið...

........................................

 

29-sep-03 Nýji Travis diskurinn

12 Memories hefur verið í spilun af og til síðustu tvær vikurnar og verður hann bara betri og betri. Fyrst smáskífan, Re-offender er fínt lag en svo eru lög eins og The Beautiful Occupation, Peace the fuck out, Somewhere else og Quicksand sem eru alveg að virka hjá El Dorado, felulagið In the church er líka flott lag. Diskurinn er allavega að standa undir væntingum...
Hvar fékk snilldin diskinn svo snemma.....

20-sep-03 Velkominn í GKG

Ég gekk í Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar í gær. Mér var gefið golfsett á vordögum og síðan þá hef ég varla hugsað um annað, enda yndislegt sport. Fjárlmálastjóri El Dorado sagði mér að ganga í einhvern klúbb svo við færum ekki á hausinn og varð GKG fyrir valinu...

19-sep-03 Nissan Almera

Loksins kom hún, Almeran. 1800 vél, 116 hestar, sjálfskiptur og með stýri. Glæsilegur bíll finnst mér allavega. Hvað finnst þér? (það vantar reyndar Spolierinn á þennan - ekki minn....)

11-sep-03 12 Memories

Lánið lék við okkur á sunnudaginn er Snilldin útvegaði okkur nýja diskinn með Travis, 12 Memories. Fyrsta hlustun lofar mjög góðu...

Nissan Almera 5 dyra bíll varð fyrir valinu eftir harða keppni við Renault Mégane II. Bifreiðin kemur í hús á þriðjudaginn...

6-sep-03 Heppnir þjóðverjar...

Ze Germans voru heppnir að sleppa með jafntefli á Laugardagvellinum í dag - við áttum að vinna...

Hvaða bíl að ég að leigja mér...?

Tók "bílaumboðarunkt" í dag í leit að nýjum bíl, Peugeot 206 hefur verið sagt upp störfum og tekur uppsögnin gildi næstum strax. Eftir að 10 bílar hafi verið með í upphafi stendur valið nú á milli þriggja bíla: Renault Mégane II, Nissan Almera og svo Ford Focus. Mér líst best á Mégane II en konan vill Nissaninn, spurning hver ræður...

6-sep-03 One man, one desire...

Pablo Francisco hélt smá uppistand í Háskólabíó áðan og ég skellti mér að sjálfsögðu - þvílík snilld, alveg ótrúlegur þessi gaur. Hljóðin sem koma upp úr honum er ótrúlega fyndin, já og allir þessi brandarar...

Liverpool náði loks að vinna leik, og það gegn Everton á Goodison Park - mjög góður sigur og nauðsynlegur. Þessi sigur gefur Houllier smá gálgafrest, ég held samt ennþá að hann sé búinn að gera allt sem hann getur með þetta lið, það er kominn tími á nýjan stjóra - hver það er er önnur saga og lengri...

Þýskaland - Ísland á Laugardalsvellinum í dag, erfitt verkefni fyrir okkur en menn hér eru almennt bjartsýnir á gott gengi. Ég er ekki bjartsýnn, leikurinn endar 0-1 og skorar Michael Ballack sigurmarkið á 79. mín og munu okkar menn ekki ná góðum leik, því miður... en vonandi náum við stigi eða stigum...

 

26-aug-03 Seinkun á upprisi stórveldis

Vegna skorts á hæfileikum leikmanna og þjálfara Liverpool hefur stjórn Liverpool ákveðið að fresta upprisunni, sem hefði átt að vera í gangi núna, um óákveðinn tíma...

21-aug-03 Facelift

Glöggir gestir El Dorado hafa líklegast tekið eftir smá breytingum á útliti heimasvæðis okkar - við fórum úr hafbláum lit yfir í hvítt og grátt. Vonum við að þetta fari vel í lesendur...

Liverpool byrjaði tímabilið ekki vel, lítil batamerki sáust á leik liðsins frá því í vor en vonadi kemur þetta í næsta leik, gegn Aston Villa á Villa Park í Birmingham. Kewell skoraði ekki í fyrsta leik eins og Collymore gerði (í 1-0 sigri á Sheffield Wednesday á Anfield Road) en vonandi kemur markið á móti Villa...

 

10-jul-03 Tilkynning frá ritnefnd:

Einhverjar breytingar eru í vændum hér hjá El Dorado á netinu, verið er að vinna í nýju útliti vefsins og gæti það tekið nokkra daga til mánuði... Þess vegna verður lítið um uppfærslur hjá okkur en þá aðeins meira en hefur verið undan farna mánuði...

Ég verð að minnast á Harry Kewell - hann er kominn til Liverpool og hefur mér ekki liðið betur vegna nýs leikmanns síðan Stan the man Collymore var keyptur fyrir 8.5 millur fyrir 8 árum (minnir mig), þó á ég von á að Kewell geri betri hluti en Collymore... Samt var ég ánægður að vissu leyti með Stan the man en það er önnur og lengri saga sem ekki verður sögð hér - alla vega ekki í dag...

1-jul-03 Tilkynning frá Ritstjóra:

EL DORADO SAMFÉLAGIÐ VAKNAR UPP AF LÖNGUM DVALA...

loksins segja sumir...

Við segjum bara: afsakið hlé... hléið loksins búið...