31-dec-04 Síðasta færsla ársins 2004

Það er við hæfi að hafa hana stutta, enda var árið 2004 svo fljótt að líða að það var ekki nema rúmir 9 mánuðir...

Takk fyrir árið, það verður gert upp eftir helgi, sjáumst hress á næsta ári...

 

28-dec-04 Jólagjöfin í ár?

Frábært ef þetta gengi eftir...

Ljósmyndari El Dorado fannst loksins en hann týndist í Veiðiferðinni. Eitthvað af myndum var í vélinni hjá honum og var þeim skellt í Myndaalbúmið...

 

 

23-dec-04 Gleðileg jól

El Dorado óskar ykkur öllum gleðilegra jóla, vonandi hafið þið það gott um jólin...

 

22-dec-04 Online

El Dorado samfélagið hefur verið hálf lamað þennan mánuðinn eða alveg síðan höfuðstöðvarnar voru fluttar út í sveit. Og Vodafone gleymdi að ýta á einhvern takka og því var ekkert ADSL hjá okkur. Því var reyndar bjargað í dag. Það tók Og Vodafone ekki nema mánuð að redda þessu, skál fyrir því!

Djöfull verður gott að komast í frí. Vinna í dag og á morgun og síðan frí til 4. janúar 2005, vá hvað ég ætla ekki að gera neitt...

 

20-dec-04 Timbur

Er eitthvað meira hressandi á mánudagsmorgni en smá þynnka...
Of mikið hvítvín í gær, í fínu Kaupfélagsjólaboði, í Kaupfélaginu sem bráðum verður flutt mjög nálægt yfirráðasvæði El Dorado, viðræður um sameiningu þó ekki í gangi...

 

 

17-dec-04 Hó Hó Hó?

El Dorado er ekki kominn í jólaskap, spurning að kíkka á jólamynd um helgina...

 

14-dec-04 Wild Card

Hefuru séð hópinn sem dómararnir völdu í Wild Card þáttinn?
Þetta verður ekki eins hallærislegt og í fyrra, krakkarnir fá að syngja aftur...
Spurning hvor geðsjúklingurinn hagi sér eins og maður og komi sér í Smáralindina, efast reyndar um það en hann er með hörku rödd...

Já svo eru bara jólin í næstu viku...

Þetta var fyrsta færslan úr Marteinslauginni, í gegnum modem 56k, ekki snilld...

Islenskii Idolskii

 

13-dec-04 Markverja

Leikurinn á laugardaginn var sá 10 í röðinni hjá Chris Kirkland í deildinni. Í þessum 10 leikjum hefur hann aðeins haldið markinu hreinu í einum leik. Hann virðist ekki geta varið skot, er mjög óöruggur í öllum úthlaupum og virðist einhvern veginn bara vera brothættur. Burt með kappann! Hvað segir þú?

Nokkrar hugmyndir fyrir Benitez:
Kaupa markvörð í janúar
Kalla á Grobbelar
Kaupa Westerveld aftur
Skella Dudek aftur í markið og hætta þessu helvítis rugli!

 

9-dec-04 Hví?

Af hverju var ég ekki á Anfield í gær?

 

06-dec-04 Home Sweet Home part 2

Vika liðin á nýjum stað. Búið að vera nóg að gera. Nóg er eftir að gera, samt ekki mikið. Komin smá mynd á þetta. Engin nettenging, módemið ekki sátt við flutningarnar eða tekur tíma að venjast. Vont að vera ekki með netið. M´bebe myndin ekki fundin, hvar er hún? Læt duga í bili. Ef þú vilt kíkja í heimsókn þá eru The ED´s alltaf heima...

Smá tilkynning frá Veðbanka El Dorado:
Hildur Vala Einarsdóttir verður næsta Idol-Stjarna