27-mar-04 Myndir úr afmælinu
Þegar El Dorado varð 30 ára um daginn var haldin stór og mikil veisla og öllum fallegu vinum og velunnurum El Dorado var boðið (engin veit af hverju Skarpi var þarna...) og var ljósmyndari El Dorado á staðnum. Myndirnar hafa nú borist vefstjóra og birtum við þær hér
21-mar-04 Damien Rice á Nasa
Ég fór á Damien Rice á Nasa á föstudagskvöldið og skemmti mér vel. Rice var einn á ferð en tónleikarnir voru ekkert síðri fyrir vikið. Hann er frábær söngvari og góður kassagítarleikari. Það var snilld hvernig hann fléttaði Creep (radiohead) inn í The Blowers daughter og ennþá meiri snilld hvernig hann fléttaði Halleluiah (Cohen) inn í Cold water - þessi tvö lög voru að mínu mati hápunktar tónleikanna. Skipuleggjendur tónleikanna mætti hins vegar taka og berja, því margt hefði betur mátt fara, t.d. byrjuðu tónleikarnir ekki fyrr en rúmlega 11 sem mér finnst ekki passa fyrir svona tónleika, svo var þetta haldið á Nasa þar sem aðeins voru sæti fyrir um 80 manns en 600 miðar voru seldir og þetta er ekki þannig tónlist að fólk vill standa og dansa og svo var fólk orðið frekar ölvað þannig þetta var eins og að vera á balli nema hvað það var engin ballhljómsveit heldur trúbator með kassagítar þannig að hávaðinn fólkinu yfirgnæfði stundum tónlistina sem var frekar pirrandi. Þrátt fyrir allt þetta þá skemmti ég mér mjög vel en þetta hefði verið ennþá betra ef tónleikarnir hefðu verið t.d. í Austurbæ eða Háskólabíó...

8-mar-04 So you say it´s your birthday
El Dorado er 30 ára í dag. Í tilefni dagsins fengu allar konur á Ítalíu frí...
Takk fyrir öll skeytin...
1-mar-04 Óskar frændi
Óskarsverðlaunaafhendingin var í gær og er óhætt að segja að kvöldið hafi tilheyrt bestu mynd allra tíma. Lord of the Rings: The Return of the King fékk fullt hús, 11 verðlaun af 11 tilnefningum og átti þetta allt skilið. Óþarfi að hafa þetta eitthvað lengra, þetta segir sig sjálft...
25-feb-04 Feels like home
Við vorum að komast yfir nýja diskinn með Norah Jones og hljómar hann mjög vel, lofar mjög góðu, gæti jafnvel verið betri en Come away with me, kannski stór orð en við sjáum til. Það er allaveg ljóst að hún nær að fylgja fyrri disknum fyllilega vel eftir og er óhætt að segja að Norah Jones er ekki bara "one record wonder"...
...er það til?

20-feb-04 Bítlaæði
Bítlaæðið hefur rutt sér til rúms í El Dorado, vissulega hafa Bítlarnir alltaf átt sinn sess hjá okkur en núna eru þeir aðalatriðið. Ástæðan er sú að nýlega var lesin bókin Bylting Bítlanna. Ég hafði aldrei kynnt mér sögu The Beatles af einhverri alvöru fyrr og var margt sem kom á óvart, sérstaklega síðustu ár hljómsveitarinnar. The Beatles voru einfaldlega snillingar, sem 4 einstaklingar og sem hljómsveit en þó voru John og Paul aðeins meiri snillingar en Ringo og George og var gaman að lesa um samkeppnina þeirra á milli sem alltaf leiddi til einhvers snilldar lags, enda eiga þeir milljón góð lög...

16-feb-04 Damien Rice á klakann
Það er búið að staðfesta það að Damein Rice verður með tónleika á Nasa 19. mars og ætla ég að vera á staðnum og hlakka mikið til enda snillingur á ferð, þ.e.a.s. Damien Rice...
...read me the story of O....
8-feb-04 Hverjir blanda landa?
Klukkan er 2:55 og ég er nýkominn af "hljómsveitaræfingu" og er í ruglinu. Ég hafði ekki spilað í hjómsveit í 8 ár en í kvöld kom að því, ég ásamt nokkrum mönnum tengdum SG komum saman og tókum nokkur lög. Var notað nokkuð gott kerfi, góðar græjur en ekki leist okkur á blikuna (reyndar fékk ég að spila og uppáhaldslagið mitt, Yellow eftir Chris Martin) þegar lög eins og Það blanda allir landa og Anna í Hlíð voru spiluð, þannig að það eina sem hægt var að gera var að drekka sig fullan og þykjast hafa gaman af. Ekki mæti ég á næstu æfingu...
Hver samdi þetta lag...
31-jan-04 Lámenning
Vinnudjamm endaði á karaokee bar í gærkveldi. Það er eitthvað púkó við þessa staði en samt hægt að skemmta sér ágætlega ef maður er nógu fullur, sem reyndar var raunin í gær og tók ég lagið einu sinni. El Dorado hefur hljómað betur, t.d. í Idol-Valaskjálf helgina áður, en undirtektir voru nokkuð góðar. Spurning hvort það hafi verið mín frammistaða eða bara þetta snilldar lag sem hreif nærstadda...
29-jan-04 Hvaðan kemur þessi kuldi....
Nú er frost á fróni frís í æðum blóð...
9-jan-04 Damien Rice
Snilldin benti okkur á um daginn tónlistarmann sem átti víst að vera góður, við náðum okkur í diskinn hans, sem heitir O, og eftir smá hlustunn þá höfum við komist að þeirri niðurstöðu að hann er snillingur hann Damien Rice og albúmið hans O er frábært. Kassagítarinn er fyrirferðamikill, melódíur sem steinliggja og svo allir strengirnir...
1-jan-04 Árið 2004 framundan...
Það er alltaf gaman að hefja nýtt ár, það er að vissu leyti "fresh start", maður setur sér ný markmið og allt lítur vel út. Svo er líka gaman að rifja upp liðið ár, sem var að mestu eytt í brúðkaupum finnst mér, sem reyndar var gaman. Árið 2004 mun vera frábært ár fyrir mig, kannski útskýri ég það síðar..
Gleðilegt ár!
©El Dorado ltd. 2001-2004