30-apr-04 Það ER komið sumar!

Frétt frá GKG á golf.is

Ég á teig klukkan 8 í fyrra málið, bara snilld...

27-apr-04 ...og það er komið sumar!

Ég er alveg að fýla það að sumarið skuli vera rétt handan við hornið. Hérna eru 6 ástæður fyrir því að það er frábært að það sé að koma sumar...

1. 23. júlí
2. Það er töluvert skemmtilegra að spila golf úti á velli en í sporthúsinu
3. Einhvern vegin hljómar grill og bjór betur á sumrinn heldur en á veturna
4. Ísland er landið! Mér finnst alltaf jafn gaman að skoða landið og hef gert mikið því síðustu sumur, spurning hvert verður farið í sumar, hálendið?
5. Sumarfrí
6. Eins og Bubbi sagði: "Sumarið er tíminn, er kvenfólk springur út" og er ég alveg sammála honum, það er mjög gaman að kíkka niður á Austurvöll þegar sólin skín...

25-apr-04 The Da Vinci Code kvikmynduð

Hafin er framleiðsla á kvikmyndinni The Da Vinci Code sem er byggð á samnefndri bók eftir Dan Brown. Ron Howard (A Beautiful mind, How the Grinch stole christmas, Apollo 13) mun leikstýra henni. Samkvæmt The Movie Insider þá mun Russel Crowe leika Robert Langdon og Kate Beckinsale mun leika Sophie Neveu. Russel Crowe er góður og fjölhæfur leikari og fer örugglega vel með þetta hlutverk en það er spurning hvort Kate Beckinsale sé rétta manneskjan til að leika franska dulmálssérfræðinginn, við verðum bara að vona það. Enn er ekki komið í ljós hvaða leikarar fara með hin hlutverkin í myndinni en vonandi verður vel valið enda margir skemmtilegir karekterar, eins og t.d. Fache lögregluforingi (Jean Reno??) og Sir Tebing.

Spurning er hvort að framleiðendur myndarinnar þori að setja fram allar þær kenningar sem eru í bókinni, enda eru þær ansi magnaðar og koma til með að vekja gríðarleg viðbrögð. Vissulega er bókin komin út og selst mjög vel en ég held að fleiri komi til með að sjá myndina heldur en lesa bókina þannig að kirkjan gæti sett pressu á framleiðendurna um að sleppa einhverju. Svo eru þessir Hollywood vitleysingar alveg líklegir til að breyta einhverju í sögunni, t.d. blanda FBI eða einhverju álíka heimskulegu (bandarísku) í málið.

Það er alveg ljóst að það verður erfitt að koma þessari sögu almennilega til skila á hvíta tjaldið þannig að allir þeir sem hafa lesið bókina verði sáttir. Myndin verður frumsýnd einhvern tímann á næsta ári og verðum við bara að bíða spennt þangað til...

Er El Dorado að pæla aðeins of mikið í þessu.....?

...bara snilldar bók!

 

19-apr-04 Boston calling

1 mánuður í Boston ferðina, búið er að panta teig á golfvellinum í Newton og allt orðið klárt. Eini gallinn er kannski sá að Larry Bird er hættur að spila og því verða Boston Celtics dottnir út úr NBA Playoffs, sem hófst á laugardaginn, þannig að ekki kemst maður á NBA leik - kannski næst...

17-apr-04 Fyrir 34 árum...

Paul McCartney gefur út sólóplötuna McCartney og segir í viðtali að hann sé hættur í The Beatles. Lennon kallaði þetta "puclic stunt" og sagðist vera löngur hættur í The Beatles...

Linda McCartney dó á þessum degi 1998...

13-apr-04 Páskarnir afstaðnir

Þá hafa páskarnir lokið sér af og við tekur hversdagsleikinn enn og aftur, sem er bara gott. Þessi helgi var jafn góð og hún var löng þó svo að rauðu aumingjarnir með Carlsberg auglýsinguna hafi skitið á sig - hér er samantekt:

Maður helgarinnar: Jesú! Það er víst honum að þakka, þetta langa frí. Svo var ég að heyra að hann hafi verið giftur Maríu Magdalenu, go Jesus!

Aumingjar helgarinnar: Liverpool FC ber höfuð og herðar yfir aðra í þessum flokki. Útskýringar óþarfar...

Afþreying helgarinnar: US Masters var frábær skemmtun, sérstaklega lokadagurinn. Ótrúleg tilþrif sáust, t.d. fóru tveir holu í höggi, einn setti niður 200 metra högg og svo var mikil barátta á milli Mickelson og Els. Þegar ég var ekki að horfa á golfið var ég að lesa Da Vinci Code og er það ein besta bók sem ég hef lesið (jafnvel betri en ævisaga Hugh Hefner...), reyndar er ég ekki búinn með bókina en ég klára hana í kvöld... Þess má geta að bókin verður kvikmynduð á árinu...

Hápunktur helgarinnar: Jói fel hefur alltaf farið nett í taugarnar á mér (hann er svo miklu massaðari en ég...) en eftir laugardagskvöldið var hann tekinn í sátt. Málið er að ég át mat sem var eldaður eftir uppskrift hans (einhver annar eldaði, snilldar kokkur!) og þvílík snilld. Kannski ég horfi á Jóa Fel næst...

Hljómsveit helgarinnar: The Beatles eru alltaf hljómsveit helgarinnar. You won´t see me hljómaði líklega oftast um helgina enda flott lag...

Gella helgarinnar: Sophie Neveu. Í framhaldi af þessu er gaman að spá í hver kemur helst til greina sem Sophie Neveu þegar myndin verður kvikmynduð - samkvæmt The Movie Insider er það Kate Beckinsale (Shooting fish, Pearl Harbor) sem á að leika hana en mér líst ekki alveg nógu vel á hana en hún gæti komið á óvart, hún er allvega sæt en væri ekki lang best að fá einhverja franska leikkonu en ekki breska eða bandaríska leikkonu með fáranlegan franskan hreim... Tökum upp þráðin þegar nær dregur!

Mynd helgarinnar: Þessi mynd var tekin í gær þegar hinn ógurlegi glæpamaður Högni Stefánsson var handtekinn, já eða eitthvað svoleiðis...

Put ´em up!

 

©El Dorado ltd. 2001-2004