29-aug-06 Suður um höfin

Ég fékk skemmtilegt símtal í gærmorgun. Fékk að vita að þann 5. september væri ég að fara til Lanzarote í tvær vikur ásamt konu minni og dóttur og búið að væri að redda fyrir mig fríi í vinnunni. Á línunni var Anna. Það verður seint sagt að hún sé fyrirsjáanleg. Reyndar ætlaði hún ekkert að segja mér frá þessu fyrr en um helgina en hún gat ekki ein sótt um vegabréf fyrir Ástu og því fékk ég að vita þetta í gær...

Við verðum á hóteli sem heitir Princesa Yaiza, sem er á suðurströnd Lanzarote, sem er nyrsta og vestasta eyjan í Kanaríeyjaklasanum. Lanzarote er aðeins um 100 kílómetrum frá Marokkó, þannig að þetta er mjög sunnarlega. Þetta hótel er ekkert slor, 5 stjörnu hótel og verðum við í svítu. Þetta verður frábært...


Hótelið lítur ekkert illa út - smellið á myndina til að sjá hana stærri...

Suður um höfin að sólgiltri strönd
svífur minn hugur, þegar kólna fer um heimalönd.
Og meðan ég lifi, ei bresta þau bönd,
sem bundið mig hafa við suðræna strönd

23-aug-06 Haustdagskráin

Nú þegar sumarið er að baki, er við hæfi að kynna dagskrá haustsins. Hún er þétt, eins og alltaf en þetta er kannski það sem ber hæst hjá okkur þetta haustið:

Fösskvis snýr aftur 1. september
Nýtt lúúk á El Dorado 1. september
Ljósmyndakeppni hefst 2. október (þemað er: Fullur)
Októberfestival í nóvember: Bjór vikunnar gerð góð skil allan mánuðinn
Jól 24. des

Sem sagt nóg að gera. Reyndar er seinni partur október óplanaður, þannig að ef þú hefur hugmynd þá endilega haltu henni fyrir þig...

Já, Fösskvis hefst í næstu viku, þannig að það er um að gera að fara að setja sig í stellingar og vera með frá byrjun. Bendi á linkinn hér til vinstri ef þið viljið rifja upp hvernig þetta gegnur fyrir sig...

17-aug-06 Nothing but a headache

RockStar Supernova er vinsæll þáttur á EdTV. Þó er sjaldan horft á hann í beinni, yfirleitt horft á endursýningarnar daginn eftir. Magni er að gera mjög góða hluti þarna úti og er hreinlega að koma okkur á óvart. Ekki höfðum við hugmynd um hve góður söngvari kappinn er og er bara gaman af því. Ég var að spá í það af hverju maður vissi það ekki og eftir smá pælingu þá fattaði ég það. Á móti sól. Leiðindarhljómsveit sem maður hefur engann áhuga á að tékka nánar á, einfallt. Vonandi að Magni geri eitthvað gáfulegra þegar hann kemur heim, ef hann frontar ekki Supernova, sem við höldum að hann geri ekki...

Það er reyndar eitt sem fær mann næstum því til að sleppa því að horfa á þessa þætti: KFC auglýsingarnar! Hvað er málið? Hvaða snillingur bjó þessar auglýsingar til og hvernig datt KFC í hug að borga fyrir þær og halda þeir virkilega að þær fái mann til að fara og kaupa sér Twister eða Tower Zinger eða hvað sem þetta heitir? Maður fær kjánahroll þegar maður sér þetta fólk tjá sig um KFC rétti, hálfpartinn vorkennir þeim, því þeim virðist líða mjög illa. Og hvað er málið með þetta lag, Nothing but a heartache (með The Flirtations), skil ekki alveg hvað það á að gera fyrir þessa auglýsingu. Nothing but a heartache? KFC er skyndibiti og ekkert sérlega góður fyrir hjartað - nei þetta gengur ekki upp...

En svo þegar Brooke Burk birtist á skjánum þá gleymir maður þessari hörmung um leið...

Nothing but a heartache...

14-aug-06 Dagurinn er runninn upp

Heldur betur. Kallinn bara mættur til vinnu. Kæmi samt ekki á óvart að maður hætti á hádegi, fara varlega í þetta eftir langt frí. Við Ásta erum búin að hafa það mjög gott í sumar og gera margt skemmtilegt en núna tekur við nýr kafli og verður spennandi að sjá hvernig það gengur...

Það er alltaf jafn gaman að vinna Chelsea, sérstaklega í úrslitaleikjum. Liverpool spilaði vel í gær og var sterkari aðilinn. Markið hjá Riise var stórkostlegt og líka vel afgreitt hjá Crouch en sennilega var Sissoko maður leiksins, virkilega öflugur og sívinnandi. Já það er alltaf gaman að vinna Chelsea...

Fyrsti bikar tímabilsins

8-aug-06 Tíðindi helgarinnar

Verslunarmannahelgin að baki, sumarið búið. Yfirleitt er dottið hressilega í það um verslunarmannahelgar og versló í ár var engin undantekning. Á föstudaginn var matarboð í R13 og þvílík veisla sem það var, maturinn var frábær og stemmningin var mögnuð, svolítið skrítin stemmning í gangi en virkilega gaman, að mér skilst...

Á laugardaginn voru liðin 40 ár síðan að Revolver, 7 plata The Beatles kom út. Ein mesta snilld tónlistarsögunnar, ef ekki sú mesta...

Í gær tókum við góðan göngutúr um miðbæinn og skoðuðum hann eins og túristar gera, lásum okkur til um helstu byggingar og sögu miðbæjarins. T.d. hafði ég ekki hugmynd um að 1915 brann stórhluti hans og í kjölfarið var farið að byggja steinhús á Íslandi og eldfimu timbrinu gefið frí. Kannski skrítið en ég held að ég hafi vitað meira um sögu London og New York heldur en sögu bæjarins sem ég bý í en það hefur verið leiðrétt núna. Allavega, þetta var mjög gaman og fræðandi og í raun nokkuð óvænt skemmtun...

Já, svo fer maður bara að vinna á mánudaginn, sem þýðir að Ásta fer til dagmömmunnar þá, vonandi að það gangi allt vel...

It was 40 years ago today...

Eldri færslur

 

 

©El Dorado ltd. 2001-2006